Lög Birtu samtaka

Samtök foreldra & forráðamanna sem misst hafa börn / ungmenni skyndilega.

Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með samþykki 2/3 fundarmanna. Breytingartillögur skulu hafa borist stjórn í tæka tíð fyrir aðalfund.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

  • Samþykkt á stofnfundi þann 7. desember 2012 í Grafarvogskirkju í Reykjavík.
  • Breyting gerð á aðalfundi þann 26. apríl 2016
  • Breyting gerð á aðalfundi þann 21. maí 2019
  • Ákvæði til bráðabirgða: Á stofnfundi eru þrír stjórnarmenn kosnir til eins árs og þrír til tveggja ára.
  1. grein: Samtökin heita Birta – landssamtök foreldra/forráðamanna sem misst hafa börn/ungmenni skyndilega.
  2. grein: Heimili samtakanna er Grafarvogskirkja v/Fjörgyn 112 Reykjavík og varnarþing er í Reykjavík.
  3. grein: Samtökin eru vettvangur foreldra/forráðamanna barna (0-18 ára) og ungmenna (18-25 ára) sem látist hafa skyndilega. Undir skyndilegt dauðsfall flokkast öll dauðsföll sem ekki gera boð á undan sér, hvort heldur sem orsökin eru líffræðileg, viðkomandi hafi fallið fyrir eigin hendi eða annarra, horfið eða látist af slysförum.
    Samtökin fylgja ekki strangri aldursskilgreiningu.
  4. grein: Tilgangur samtakanna og markmið er:
    a) Að standa fyrir fræðslu og ýmsum viðburðum á landsvísu, til sjálfstyrkingar fyrir syrgjandi foreldra og fjölskyldur þeirra. b) Að standa fyrir árlegum hvíldardögum fyrir foreldra/forráðamenn með uppbyggjandi fræðslu og endurnærandi hvíld að leiðarljósi.
  5. grein: Félagar geta orðið: a) Foreldrar/forráðamenn sem misst hafa börn og/eða ungmenni með skyndilegum hætti, sbr. 3. grein. b) Félagsaðild er óháð búsetu og trúfélagsaðild.
  6. grein: Stjórn samtakanna er skipuð formanni og sex meðstjórnendum. Stefnt skal að því að hafa sem jafnast hlutfall milli landsbyggðar og höfuðborgar. Formaður skal kosinn til eins árs í senn en aðrir stjórnarmenn og tveir skoðunarmenn reikninga til tveggja ára. Kjósa skal um formann á stofnfundi samtakanna. Stjórn samtakanna getur tilnefnd framkvæmdastjóra utan stjórnar, gerist þess þörf.

    Aðalfundur skal haldinn eigi síðar en í lok apríl ár hvert. Aðalfundur skal boðaður skriflega, með bréfi, tölvupósti eða auglýsingu í fjölmiðlum. Boðað skal til aðalfundar með tveggja vikna fyrirvara.
    Á dagskrá aðalfundar skal vera:
    1. Skýrsla stjórnar.
    2. Ársreikningur.
    3. Lagabreytingar, enda hafi þeirra verið getið í fundarboði og þær kynntar þar.
    4. Kosning stjórnar aðal- og varamanna auk skoðunarmanna reikninga.
    5. Ákvörðun um árgjald
    6. Mál sem getið er um í fundarboði.
    7. Önnur mál
  7. grein: Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með samþykki 2/3 fundarmanna. Breytingartillögur skulu hafa borist stjórn í tæka tíð fyrir aðalfund.

Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á stofnfundi þann 7. desember 2012 í Grafarvogskirkju í Reykjavík.
Breyting gerð á aðalfundi þann 26. apríl 2016

Scroll to Top