Birta landssamtök

Aðalfundur og opið hús

Aðalfundur Birtu-landssamtaka fer fram 14.apríl 2026 á 2.hæð í Grafarvogskirkju.

Birta – landssamtök foreldra/forráðamanna sem misst hafa börn/ungmenni skyndilega boða til AÐALFUNDAR og opins húss þann 14.apríl kl 19:30 á 2.hæð í Grafarvogskirkju

Dagskrá:

Skýrsla stjórnar um starf samtakanna starfsárið 2025-2026

Ársreikningur fyrir 2025 lagður fram – umræður

Lög Birtu / Breytingar ef á við

Kosning stjórnar

Önnur mál

Formaður, Linda S Birgisdóttir -gefur ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku .

Áhugasamir félagsmenn eru eindregið hvattir til að gefa kost á sér til stjórnarsetu. Með stjórnarsetu gefst tækifæri til að hafa bein áhrif á starf samtakanna, meðal annars velja fyrirlesara og skipuleggja hvíldarhelgi. Nýjar hugmyndir um það hvernig hægt er að styðja enn betur við foreldra og forráðamenn sem misst hafa barn eða ungmenni skyndilega eru alltaf vel þegnar.

Gott er að tilkynna áhuga til þátttöku í stjórn á netfanginu birtalandssamtok@gmail.com og mun kosning milli áhugasamra fara fram á fundinum.

Seta stjórnarmanna er 2 ár í senn. 1 ár fyrir formann samtakanna

Scroll to Top