Stjórnin kosin 14. maí 2024
Aðalstjórn:
- Linda Sólveig Birgirsdóttir – Formaður – 2024-2025
- Sigríður Ósk Jónsdóttir – Gjaldkeri
- Sesselja Hreinsdóttir.
- Konráð Halldór Konráðsson.
- Gunnar Viðar Jónsson.
Seta stjórnarmanna er 2 ár í senn.
1 ár fyrir formann samtakanna.
Stjórnin kosin 9. maí 2023
Aðalstjórn:
- Linda Sólveig Birgirsdóttir – Formaður – 2023-2024
- Sigríður Ósk Jónsdóttir – Gjaldkeri
- Konráð Halldór Konráðsson.
- Sesselja Hreinsdóttir.
- Elín Björg Jónsdóttir.
Varastjórn:
- Gunnar Viðar Jónsson.
Seta stjórnarmanna er 2 ár í senn. 1 ár fyrir formann samtakanna.
————————————————————————————————————————-
Stjórn kjörin á aðalfundi Birtu í maí 2020.
Nöfn stjórnarmanna:
Elísa Rós Jónsdóttir formaður
Selma Olsen, gjaldkeri
Helena Rós Sigmarsdóttir
Pétur Emilsson
Elín Björg Jónsdóttir
Þorbjörg Steins Gestsdóttir
Elín Björg Birgisdóttir
Varamaður:
Jón Gísli Guðlaugsson
Helga Óskardóttir
Stjórn kjörin á aðalfundi Birtu í maí 2019.
Nöfn stjórnarmanna:
Helena Rós Sigmarsdóttir, formaður
Selma Olsen, gjaldkeri.
Pétur Emilsson
Elín Björg Jónsdóttir
Konráð Halldórsson
Elín Björg Birgisdóttir
Elísa Rós Jónsdóttir
Varamaður:
Jón Gísli Guðlaugsson
Stjórn kjörin á aðalfundi Birtu í maí 2017.
Nöfn stjórnarmanna:
Fanný Heimisdóttir
Konráð Halldór Konráðsson
Varamenn: Jón Gísli Guðlaugsson & Selma Olsen
Símavakt: Sveinbjörn Bjarnason
Skoðunarmenn reikninga
Þorvaldur Ingi Jónsson
Harpa Þráinsdóttir
Fundargerð aðalfundar Birtu landssamtaka fyrir árið 2018
Aðalfundur Birtu landssamtaka foreldra/ forráðmanna sem misst hafa börn/ungmenni skyndilega var haldinn í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 21. maí 2019 og hófst kl. 20:00. Mættir voru átta félagar.
Dagskrá var samkvæmt lögum samtakanna. Dagskráin fylgir fundargerðinni sem fskj. 1. Formaður setti fund og stjórnaði honum. Ritar auk þess fundargerð fundarins.
- 1. Skýrsla stjórnar. Formaður las skýrsluna. Fundarmenn vildu láta bæta við hana og
var það rétt athugasemd og því skýrslan leiðrétt sem því nam. Eftir það samþykkt
samhljóða. Skýrslan fylgir með fundargerðinni sem fskj. nr. 2. 2. Ársreikningur lagður fram. Formaður kynnti reikninginn og urðu nokkrar
umræður um einstaka liði hans. Reikningurinn samþykktur samhljóða.
- 3. Lagabreytingar. Drög að lagabreytingum höfðu verið send til félagsmanna með
fundarboði. Farið var yfir gildandi lög, drögin að breytingunum og síðast lögin eins og þau yrðu ef drögin hlytu samþykki. Nokkrar umræður urðu þar um. Breytingarnar því næst samþykktar samhljóða. Meðfylgjandi eru eftirtalin skjöl: Fskj. 3 – Lög samtakanna eins og þau eru fram til þessa fundar. Fskj. 4 – Drög að breytingum laganna.
Fskj. 5 – Lögin eins og eru eftir samþykktar breytingar. 4. Kosning stjórnar. Sveinbjörn Bjarnason gefur ekki kost á sér til áframhaldandi
setu sem formaður samtakanna né heldur í stjórn þeirra.
Tillaga er um að Helena Rós Sigmarsdóttir verði næsti formaður. Þess skal getið að hún hefur gefið samþykki sitt fyrir því. Ekki komu fram fleiri tillögur og var Helena Rós því réttkjörin sem formaður Birtu landssamtaka til næsta aðalfundar.
Stjórnarmenn þau Pétur Emilsson, Elín Björg Jónsdóttir og Konráð Halldór Konráðsson eiga öll eitt ár eftir af kjörtímabilum sínum.
Stjórnarmenn þau Helena Rós Sigmarsdóttir, Selma Olsen og Elín Björg Birgisdóttir hafa lokið sínum kjörtímabilum.
Þær Selma og Elín Björg hafa báðar gefið kost á sér til setu í stjórn næsta kjörtímabil, þ.e. til aðalfundar 2021
Tillaga er því um að þær Selma og Elín Björg og Elísa Rós Jónsdóttir verði kjörnar í stjórn Birtu til næstu tveggja ára eða til ársins 2021. Þess skal getið að Elísa Rós hefur gefið samþykki sitt til þessa. Ekki bárust fleiri tillögur og þær því rétt kjörnar.
Varamaður í stjórn hefur verið Jón Gísli Guðlaugsson og er gerð tillaga um að hann verði svo áfram. Ekki komu fleiri tillögur og hann því réttkjörinn.
Skoðunarmaður reikninga hefur verið Þorvaldur Ingi Jónsson og er gerð tillaga um að hann verði svo áfram. Ekki komu fram fleiri tillögur og hann því réttkjörinn.
- 5. Ákvörðun um árgjald. Tillaga kom um að halda árgjaldi óbreyttu eða 2.000,– kr.
og hafa sama háttinn á og hefur verið þ.e. að senda út valgreiðslu til skráðra félaga
og að ,,krafan“ falli niður ári eftir útgáfu.
- 6. Önnur mál. Rætt var um starf með fjölskyldum og þá einkanlega eftirlifandi
systkinum. Hugmyndir komu um fræðara eins og Ara Eldjárn, Sverri Þór Sverrisson (Sveppa) og Aron M. Olafsson (Aron Mola) en þeir búa allir yfir reynslu eftir systkinamissi og fleiri áföllum. Lagt til að unnið verði í þessu og hvernig fyrirkomulag gæti orðið svo sem tíðni samvera og annað.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 21:30
Surin bomizjarnason Sveinbjörn Bjarnason fundarritari
Birta landssamtök
AÐALFUNDUR
Þriðjudaginn 21. maí 2019 kl. 19:00 í Grafarvogskirkju
Dagskrá:
- 1. Skýrsla stjórnar – umræður 2. Ársreikningur lagður fram – umræður, atkvæðagreiðsla 3. Lagabreytingar (getið um þær í auglýsingu um fundinn). 4. Kosning stjórnar
Formaður – kosinn til eins árs – tillaga um Helenu Rós Sigmarsdóttur Kosning þriggja aðalmanna í stjórn — Pétur Emilsson, Elín Björg Jónsdóttir og Konráð Halldór Konráðsson eiga eitt ár eftir af kjörtímabili. Helena Rós Sigmarsdóttir,
Selma Olsen og Elín Björg Birgisdóttir hafa lokið sínum kjörtímabilum. Helena Rós hefur verið kjörin formaður. Selma Olsen og Elín Björg Birgisdóttir hafa gefið kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn til tveggja ára. Elisa Rós Jónsdóttir hefur gefið kost á sér til setu í stjórn til tveggja ára. – Tillaga er því um að Selma Olsen, Elín Björg Birgisdóttir og Elisa Rós Jónsdóttir verði kjörnar í stjórn til ársins 2021. Kosning varamanna í stjórn – tillaga er um Jón Gísla Guðlaugsson
Kosning skoðunarmanns – tillaga er um Þorvald Inga Jónsson 5. Ákvörðun um árgjald 6. Önnur mál
Birta landssamtök
Skýrsla um starf 2018
Fyrsta opna hús árins 2018 var 9. janúar og hafa verið annan þriðjudag í mánuði þ.e. 13. febrúar, 13. marz, 10. apríl og síðasta opna hús vorsins verður í kvöld, 15. maí. Formlegur stjórnarfundur var haldinn 25. febrúar 2018. Á opnu húsi 12. marz s.l. var fyrirlesari Gréta Jónsdóttir. Á opnu húsi 10. apríl s.l. voru fyrirlesarar Oddný Þ. Garðarsdóttir, Vera Björk Einarsdóttir og Þóranna M. Sigurbergsdóttir höfundar bókarinnar „MÓÐIR MISSIR MÁTTUR“. Á opnu húsi 11. desember s.l. flutti Margrét Blöndal hjúkrunarfræðingur m.m. erindi sem var mjög fræðandi og sóttu það fjöldi einstaklinga. Stuðningshópur hóf samverur 12. apríl og verður á fimmtudagskvöldum út maí. Þar koma að Sveinbjörn og Ásrún. Þátttakendur eru sjö. Í ágúst tók Birta þátt í Reykjavíkurmaraþoni og voru margir sem hlupu í nafni Birtu og safnaðist mikið fé í tengslum við það. Eftir maraþonið hélt stjórn Birtu kaffiboð fyrir þá hlaupara sem tóku þátt bæði sem einstaklingar og sem hópar, og færðu þeim þakkir. Þeim sem mest söfnuðu voru færð skrautrituð þakkarskjöl. Þetta var haldið í Grunnskólanum í Hveragerði. Nokkru síðar voru fulltrúar Birtu boðaðir á fund í Grunnskólanum í Hveragerði þar sem þeir tóku á móti veglegum styrk frá nemendum skólans en þau eru árlega með söfnunardag og nú skyldi afrakstur renna til Birtu. Þar áttu fulltrúar Birtu mjög góða stund. Birta lét gera ljósker sem á stendur „Til minningar um ástkæra dóttur“ – „Til minningar um ástkæran son„.
Nóg er til af bolum með áletrun Birtu og einnig af merkjum.
Starf Birtu yfir sumarmánuðina var ekki mikið umfram það að sinnt var símsvörun og viðbrögðum við þeim. Samstarf við Styrksöfnum hélt áfram og skilaði það góðum árangri.
Samtökin Birta, Ný dögun, Ljónshjarta og Gleym mér ei styrktu frekar samstarf sitt um stofnun Sorgarmiðstöðvar þar sem væntingar eru um að Sorgarmiðstöðin verði einskonar regnhlífarsamtök þar sem símsvörun verður og úr fyrirspurnum leist m.a. með því að koma innhringjendum í samband við þann aðila (þau samtök) sem þætti bezt henta í hverju tilviki. Einnig hefur Birta tekið þátt í fræðsluerindum þar sem fræðsluefni hefur verið í samræmi við markmið Birtu.
Skreytingadagur var við upphaf aðventu og var hann mjög vel sóttur og margar fallegar skreytingar urðu til. Leiðbeinandi var Þóra Grímsdóttir og kunnum við henni beztu þakkir fyrir. 21. maí 2019 Sveinbjörn Bjarnason
Lög samtaka foreldra sem misst hafa börn og/eða ungmenni í skyndidauða.
- 1. grein: Samtökin heita Birta – landssamtök foreldra/forráðamann sem misst hafa börn/ungmenni skyndilega.
- 2. grein: Heimili samtakanna er Grafarvogskirkja v/Fjörgyn 112 Reykjavík og varnarþing er í Reykjavík.
- 3. grein: Samtökin eru vettvangur foreldra/forráðamanna barna (0–18 ára) og ungmenna (18–25 ára) sem látist hafa skyndilega. Undir skyndilegt dauðsfall flokkast öll dauðsföll sem ekki gera boð á undan sér, hvort heldur sem orsökin eru líffræðileg, viðkomandi hafi fallið fyrir eigin hendi eða annarra, horfið eða látist af slysförum.
Samtökin fylgja ekki strangri aldursskilgreiningu.
- 4. grein: Tilgangur samtakanna og markmið er: a) Að standa fyrir fræðslu og ýmsum viðburðum á landsvísu, til sjálfstyrkingar fyrir syrgjandi foreldra og fjölskyldur þeirra. b) Að standa fyrir árlegum hvíldardögum fyrir foreldra/forráðamenn með uppbyggjandi fræðslu og endurnærandi hvíld að leiðarljósi.
- 5. grein: Félagar geta orðið: a) Foreldrar/forráðamenn sem misst hafa börn og/eða ungmenni með skyndilegum hætti, sbr. 3. grein. b) Félagsaðild er óháð búsetu og trúfélagsaðild.
- 6. grein: Stjórn samtakanna er skipuð formanni og sex meðstjórnendum. Stefnt skal að því að hafa sem jafnast hlutfall milli landsbyggðar og höfuðborgar. Formaður skal kosinn til eins árs í senn en aðrir stjórnarmenn og tveir skoðunarmenn reikninga til tveggja ára. Kjósa skal um formann á stofnfundi samtakanna. Stjórn samtakanna getur tilnefnd framkvæmdastjóra utan stjórnar, gerist þess þörf.
Aðalfundur skal haldinn eigi síðar en í lok apríl ár hvert. Aðalfundur skal boðaður skriflega, með bréfi, tölvupósti eða auglýsingu í fjölmiðlum. Boðað skal til aðalfundar með tveggja vikna fyrirvara.
Á dagskrá aðalfundar skal vera:
- 1. Skýrsla stjórnar. 2. Ársreikningur. 3. Lagabreytingar, enda hafi þeirra verið getið í fundarboði og þær kynntar þar. 4. Kosning stjórnar aðal– og varamanna auk skoðunarmanna reikninga. 5. Ákvörðun um árgjald 6. Mál sem getið er um í fundarboði. 7. Önnur mál
- 7. grein: Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með samþykki 2/3 fundarmanna. Breytingartillögur skulu hafa borist stjórn í tæka tíð fyrir aðalfund.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á stofnfundi þann 7. desember 2012 í Grafarvogskirkju í Reykjavík. Breyting gerð á aðalfundi þann 26. apríl 2016
Ákvæði til bráðabyrgða:
Á stofnfundi eru þrír stjórnarmenn kosnir til eins árs og þrír til tveggja ára.
Tillaga að breytingum á lögum Birtu
Tillaga 1
Heiti laganna er: Lög samtaka foreldra sem misst hafa börn og/eða ungmenni í skyndidauða.
Tillaga um að heiti laganna verði: LÖG SAMTAKA FORELDRA/FORRÁÐAMANNA SEM MISST HAFA BÖRN/UNGMENNI SKYNDILEGA
Tillaga 2 1. grein laganna fái yfirskriftina: HEITI SAMTAKANNA
Tillaga 3
- 2. grein laganna fái yfirskriftina: AÐSETUR
Tillaga 4 3. grein laganna fái yfirskriftina: VETTVANGUR 1. mgr. 3. greinar er þannig: Samtökin eru vettvangur foreldra/forráðamanna barna (0–18 ára) og ungmenna (18-25 ára) sem látist hafa skyndilega.
Tillag um að hún orðist svo:
Samtökin eru vettvangur foreldra/forráðamanna barna og ungmenna sem látist hafa skyndilega.
Tillaga 5
- 4. gr laganna fái yfirskriftina: TILGANGUR
B liður 4. greinar orðast svo:) Að standa fyrir árlegum hvíldardögum fyrir foreldra/forráðamenn með uppbyggjandi fræðslu og endurnærandi hvíld að leiðarljósi. Tillaga um að hún orðist svo: Að stuðla að og greiða fyrir bataferli foreldra/forráðamanna með uppbyggjandi fræðslu og/eða endurnærandi hvíld að leiðarljósi.
Tillaga 6
- 5. gr. fái yfirskriftina: FÉLAGSAÐILD
- 5. grein laganna orðast svo: Félagar geta orðið: a) Foreldrar/forráðamenn sem misst hafa börn og/eða ungmenni með skyndilegum hætti, sbr. 3. grein. b) Félagsaðild er óháð búsetu og trúfélagsaðild.
Tillaga um að hún orðist svo: Félagar geta orðið þeir foreldrar/forráðamenn sem misst hafa börn og/eða ungmenni með skyndilegum hætti, sbr. 3. grein. Félagsaðild er óháð búsetu og trúfélagsaðild.
Tillaga 7 6. grein laganna fái yfirskriftina: STJÓRN SAMTAKANNA 2. mgr. 6. greinar orðast svo: Stefnt skal að því að hafa sem jafnast hlutfall milli landsbyggðar og höfuðborgar. Tillaga um að hún orðist svo: Leitast skal við að hafa sem jafnast hlutfall milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis.
- 3. mgr. 6. greinar orðast svo: Formaður skal kosinn til eins árs í senn en aðrir stjórnarmenn og tveir skoðunarmenn reikninga til tveggja ára.
Tillaga um að hún orðist svo: Kjósa skal formann á stofnfundi samtakanna. Stjórn samtakanna getur tilnefnt framkvæmdastjóra utan stjórnar gerist þess þörf.